Fimmtudaginn 12.mars eru Mið- og framhaldstónleikar Tónlistarskóla Eyjafjarðar haldnir í Laugarborg kl.20.00.
Á þessum tónleikum koma fram lengra komnir nemendur skólans. Efnisskráin er fjölbreytt en eins og oft áður eru píanistar áberandi. Á ferðinni eru bæði klassískur og rythmískur hljóðfæraleikur sem og söngur. Þar munu hljóma ólík verk allt frá þjóðlögum, tónsmíðum íslenskra höfunda eins og Sveinbjörns Sveinbjörnssonar sem og verk erlendra höfunda á borð við Beethoven og Prokoffíef.
Verið velkomin – aðgangur ókeypis.