SÖNGDEILD
Nám í söngdeild geta allir stundað sem hafa löngun til að bæta sönghæfni sína, börn jafnt sem fullorðnir. Kennt er í einkatímum og mjög æskilegt er að nemendur séu í fullu námi.
Þegar kennari telur nemanda tilbúinn ber honum skylda til að taka þátt í samsöng og koma fram tónleikum skólans ¡ samsöngshóp. Kennari ákveður hvenær nemandi er tilbúinn í stigspróf og við undirbúning þess þarf nemandi að mæta í hóptíma þar sem nemendur syngja fyrir hvern annan undir handleiðslu söngkennara og píanóleikara. Tónleikaskylda er í samræmi við námsskrá í söng gefin út af menntamálaráðuneytinu 1988. Ætlast er til að nemendur sem stunda nám í 6 – 8. stigi leggi af mörkum mikla þáttöku í tónleikahaldi sem einsöngvarar, í samsöngsatriðum og í litlum kórum. Að öðru leyti er kennt og prófað eftir ofangreindri námsskrá í einsöng frá 1988. Söngkennari: Guðlaugur Viktorsson |