Fá hljóðfæri eiga sér lengri sögu en orgelið. Upphaflega voru hljóðfærin lítil og meðfærileg, notuð við ýmsar aðstæður. Á síðari öldum varð þróunin í þá átt að orgelin stækkuðu og tengdust kirkjum. Harmóníum, fótstigin heimilishljóðfæri, tóku að berast til landsins á ofanverðri 19. öld og nutu mikilla vinsælda langt fram á 20. öld. Á liðnum áratugum hefur pípuorgelum, af ýmsum stærðum og gerðum, fjölgað mjög og mikil þróun hefur átt sér stað í framleiðslu rafmagnsorgela.
Námstilhögun
Í fullu námi fær nemandi 60 mínútna einkakennslu á viku. Kennslan skiptist í 2 x 30 mínútna kennslustundir á fyrri stigum náms en færist oft yfir í 1 x 60 mínútur á viku þegar lengra líður á námið. Einnig er hægt að vera í hálfu námi sem er 1x 30 mínútur á viku. Tónfræði er hluti af hljóðfæranáminu. Nauðsynlegt er að nemendur hafi aðgang að hljóðfæri til æfinga heima við ásamt stól sem hægt er að stilla í viðunandi hæð. Píanó og hljómborð geta nýst til heimaæfinga þó að orgel sé besti kosturinn.
Kennsluaðferðir
Kennsluaðferðir eru fjölbreyttar og miðast við aldur og þroska hvers nemanda. Í orgelnámi þarf að tileinka sér góða líkamsstöðu og það að leika á hljóðfærið á eðlilegan hátt með góðri ásláttartækni. Gott efni fyrir fyrir byrjendur er Píanóleikur 1 eftir Björgvin Þ. Valdimarsson og Suzuki organ school fyrir nemendur sem byrjaðir eru að leika á pedal.
Heimaæfingar eru mikilvægur hluti af náminu og æskilegt er að æfa sig daglega. Orgelið hefur þá sérstöðu, ásamt öðrum hljómborðshljóðfærum, að það geta fleiri spilað á sama hljóðfærið í einu, algengast er fjórhent eða sexhent. Orgel hentareinnig vel í samspili með öðrum hljóðfærum og söng.
Í skólanum er leiðsagnarnám. Skólaárinu er skipt upp í 4 lotur. Í upphafi hverrar lotu setur nemandi í samstarfi við kennara sér námsmarkmið fyrir lotuna. Í lok hverrar lotu er námsmat þar sem metin eru þau atriði sem unnið var með samkvæmt markmiðum. Í lok hvers skólaárs er lokanámsmat.
Próf
Samkvæmt aðalnámskrá tónlistarskóla skiptist námið í þrjá megináfanga; grunnnám, miðnám og framhaldsnám og lýkur með áfangaprófum í hljóðfæraleik og tónfræðagreinum.
Gjarnan eru tekin aðfarapróf í hverjum áfanga G1 og G2 í grunnnámi, M1og M2 í miðnámi og í F1 og F2 í framhaldsstigi. Það er þó val nemenda og kennara hverju sinni hvort aðfaraprófin eru tekin. Námstími innan hvers áfanga er breytilegur og ræðst m.a. af aldri, þroska, ástundun, stuðningi heimilis og framförum.
Áfangapróf eru metin af sérþjálfuðum prófdómurum á vegum Prófanefndar tónlistarskóla. Til þess að áfangapróf séu fullgild þurfa nemendur að ljúka viðeigandi námi í tónfræðagreinum.
Grunnnám
Hljóðfæranám
Tónfræðagreinar
Hljómsveitir/samspil
Miðnám
Hljóðfæranám
Tónfræðagreinar
Hljómsveitir/Samspil
Framhaldsnám
Hljóðfæranám
Námi lýkur með framhaldsprófi og framhaldstónleikum.
Tónheyrn I og II
Hljómfræði I og II
Tónlistarsaga I – IV
Hljómsveitir/samspil