Tónleikar í Laugarborg 11. mars

Þann 11. mars verða liðin 100 ár frá fæðingu Astor Piazzolla. Að því tilefni er slegið upp tónlistarveislu í Laugaborg í Eyjafjarðarsveit fimmtudaginn 11. mars kl. 20:00.

 
Flytjendur: Helga Kvam, Jón Þorsteinn Reynisson og Pétur Ingólfsson.
Á efnisskránni verða nokkrar af frægustu perlum Piazzollas en einnig verða flutt verk sem minna eru þekkt.
Piazzolla dansaði á mörkum klassískrar Suður Amerískrar tónlistar og jazz, með skírtskotun í klassískar hefðir og er hægt að lofa tilfinningaríkri kvöldstund fullri af suðrænnri ástríðu í bland við angurværð.

Aðgangseyrir er kr 3000 og miðasala á tix.is og við innganginn.
Aðgangur er ókeypis fyrir tónlistarnemendur.